Um Eþikos

Eþikos er leiðandi í að efla samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi. Markmið miðstöðvarinnar er að miðla þekkingu á þessum  málaflokki og aðstoða aðila sem vilja auka getu fyrirtækja í að axla ábyrgð gagnvart samfélaginu, umhverfi sínu og mannréttindum. Í þessum tilgangi byggir Eþikos upp sérþekkingu hér landi m.a. með rannsóknum og í gegnum alþjóðlegt tengslanet,  veitir fræðslu og ráðgjöf um samfélagsábyrgð fyrirtækja og myndar virkan vettvang fyrir umræðu.

Miðstöðin var stofnuð í maí 2008 með stuðningi frá Alcan á Íslandi, Glitni, Lands-bankanum, Símanum, Orkuveitu Reykjavíkur, Össuri og Utanríksiráðuneytinu. Fulltrúar fyrirtækjanna sitja í stjórn Eþikosar, en það fyrirkomulag miðar sérstaklega að því að tryggja virk tengsl miðstöðvarinnar við atvinnulifið


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica