Stjórn

Stjórn miðstöðvarinnar er á hverjum tíma skipuð fulltrúum þeirra fyrirtækja og stofnana sem eru fjárhagslegir bakhjarlar hennar og hefur verið boðin þátttaka í stjórn af forseta lagadeildar að fenginni tillögu forstöðumanns miðstöðvarinnar. Ennfremur skipar lagadeild árlega 1-2 menn samkvæmt tilnefningu forseta deildarinnar að fenginni tillögu forstöðumanns miðstöðvarinnar.

Stjórnin kýs úr sínum hópi formann og varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum.

Formaður stjórnar

Anna Björk Bjarnadóttir starfar sem framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Símans. Hún hefur starfað í fjarskiptageiranum s.l. átta ár, með viðkomu í Capacent sem stjórnunarráðgjafi 2007 - 2008. Anna Björk var forstöðumaður á einstaklingssviði og áður markaðssviði hjá Símanum á árunum 2004-2007, og framkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá TDC Noregi frá 2000 - 2004. Anna Björk nam íþróttafræði við Íþróttaháskóla Ungverjalands og Íþróttaháskólann í Osló og útskrifaðist sem slíkur árið 1994. Síðan hefur hún bætt við sig markaðsnámi og stjórnunarnámi og útskrifaðist úr meistaranámi í stjórnun á fjarskiptamarkaði árið 2004 frá Wharton/TDC.

Aðrir í stjórn

Rannveig Rist hóf störf hjá ISAL árið 1990 sem framkvæmdastjóri og talsmaður fyritækisins. Þann 1. janúar árið 1997 var hún ráðin forstjóri ISAL. Áður en Rannveig réðst til starfa hjá ISAL sinnti hún m.a. vatnamælingum samhliða námi sínu til ársins 1983, var vélstjóri bæði til sjós og lands og vann sem stundakennari við Háskóla Íslands og Tækniskóla Íslands. Rannveig lauk MBA frá University of San Fransisco árið 1989.

Rannveig hefur átt sæti í stjórn Símans frá árinu 2002 til 2008 og var formaður stjórnarinnar árin 2002 til 2005.  Hún gegnir varaformennsku í stjórn Skipta og á sæti í stjórnum Viðskiptaráðs, Samtaka Atvinnulífsins og SPRON. Rannveig hlaut Fálkaorðuna í júní árið 1999 og hún hlaut Das Verdienstkreuz frá forseta Þýskalands árið 2003.




Guðjón B. Magnússon er sviðsstjóri umsýslu- og upplýsingamála hjá Orkuveitu Reykjavíkur.

Hjörleifur Pálsson er framkvæmdastjóri fjármálasviðs hjá Össuri h.f. og hefur starfað hjá fyrirtækinu síðan 2001.  Áður starfaði hann hjá Deloitte & Touche og var einn af eigandum þess. 
Hjörleifur er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands 1988 og löggiltur endurskoðandi.


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica