Starfsmenn
![]() |
Páll Ásgeir Davíðsson er stofnandi og forstöðumaður Eþikosar. Hannn hefur yfir 10 ára alþjóðlega starfsreynslu af málefnum sem varða tengslin á milli mannréttinda, viðskipta og öryggis. Páll Ásgeir starfaði um árabil hjá Sameinuðu þjóðunum m.a. við að draga úr neikvæðum áhrifum viðskipta á hin mannskæðu átök í Austur-Kongó og aðgerðir gegn hryðjuverkum. Þá vann hann fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu að uppbyggingu réttarríkis í Kosovo og innan Evrópu-ráðsins að fullnustu á dómum Mannréttindadómstóls Evrópu. Páll Ásgeir er cand. jur frá HÍ (1997) og með meistaragráðu í lögum frá Columbia University í New York (2002). Hann kennir m.a. námskeið um samfélagsábyrgð fyrirtækja við HR og Fordham University í New York. |
|
|

