Reglur
1. gr.
Almennt
Eþikos er fræðslu- og rannsóknarmiðstöð sem starfrækt er af Háskólanum í Reykjavík og heyrir undir lagadeild.
2. gr.
Hlutverk
Markmið Eþikos er að auka þekkingu á samfélagsábyrgð fyrirtækja og efla
getu fyrirtækja til að sýna ábyrgð gagnvart samfélaginu, umhverfi sínu
og mannréttindum. Til þess að ná þessum markmiðum mun Eþikos:
• mynda vettvang umræðu um samfélagsábyrgð fyrirtækja,
• vera miðstöð þekkingar á samfélagsábyrgð fyrirtækja, m.a. með því að
safna heimildum og stuðla að eða efla rannsóknir á því sviði,
• veita fræðslu um samfélagsábyrgð fyrirtækja, þ.á m. með því að gefa
út efni, gangast fyrir ráðstefnum, skipuleggja námskeið og halda
fyrirlestra um þann málaflokk,
• veita þjónustu og ráðgjöf um samfélagsábyrgð fyrirtækja,
• stuðla að samstarfi við innlend og erlend samtök, stofnanir og aðra
aðila sem starfa með málefni sem tengjast samfélagsábyrgð fyrirtækja.
3. gr.
Aðstaða og skrifstofukostnaður
Lagadeild Háskólans í Reykjavík lætur miðstöðinni í té starfs- og
fundaraðstöðu, nauðsynlegan tölvubúnað, síma, pappír, ritföng og mun
bera annan almennan skrifstofukostnað eftir því sem fjárhagur
deildarinnar leyfir.
4. gr.
Skipulag
Starfsmaður eða starfsmenn Eþikos annast skrifstofuhald miðstöðvarinnar
að því marki sem það fellur ekki undir þá almennu þjónustu sem
þjónustusvið Háskólans í Reykjavík veitir deildum skólans.
5. gr.
Stjórn og forstaða
Forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík ræður forstöðumann Eþikos.
Forstöðumaðurinn kemur fram fyrir hönd miðstöðvarinnar og annast
daglegan rekstur hennar. Hann skal eiga frumkvæði að stefnumótun og
þróun miðstöðvarinnar.
Stjórn miðstöðvarinnar skal á hverjum tíma skipuð fulltrúum þeirra
fyrirtækja og stofnana sem eru fjárhagslegir bakhjarlar miðstöðvarinnar
og hefur verið boðin þátttaka í stjórn af forseta lagadeildar að
fenginni tillögu forstöðumanns miðstöðvarinnar. Ennfremur skipar
lagadeild árlega 1-2 menn samkvæmt tilnefningu forseta deildarinnar að
fenginni tillögu forstöðumanns miðstöðvarinnar.
Stjórnin kýs úr sínum hópi formann og varaformann og skiptir að öðru leyti með sér verkum.
6. gr.
Stjórnarfundir
Haldnir skulu a.m.k. fjórir stjórnarfundir á ári. Formaður stjórnar
boðar stjórnarfundi bréflega, eða í tölvupósti með þriggja daga
fyrirvara í það minnsta. Fundarboð skal greina dagskrá fundar.
Forstöðumaður aðstoðar formann stjórnar við að útbúa dagskrár
stjórnarfunda.
Skylt er að boða stjórnarfund óski tveir stjórnarmenn þess. Sama gildir ef forstöðumaður óskar þess.
Forstöðumaður skal sitja stjórnarfundi, þótt ekki sé hann stjórnarmaður, og hafa þar umræðu- og tillögurétt.
Falli atkvæði stjórnarmanna jöfn á stjórnarfundi ræður atkvæði formanns
eða þess sem gegnir formannsstörfum. Forstöðumaður eða annar
starfsmaður Eþikos skal rita fundagerðir stjórnarfunda.
7. gr.
Verkefni stjórnar
Stjórnin annast stefnumótun fyrir Eþikos, kemur með hugmyndir um
verkefni fyrir miðstöðina og setur henni starfsreglur eftir því sem
þurfa þykir. Stjórnin sker úr í vafaatriðum sem upp kunna að koma og
varða innri starfsemi miðstöðvarinnar.
Stjórnin skal gæta þess að starfsemin sé innan þess fjárhagsramma sem
ákveðinn hefur verið í fjárhagsáætlun lagadeildar Háskólans í
Reykjavík.
Á stjórnarfundum verða rædd valin málefni sem tengjast samfélagsábyrgð
fyrirtækja. Málefnin verða valin af stjórnarmönnum og mun
forstöðumaðurinn hlutast til með að tryggja þátttöku utanaðkomandi
aðila í þessum umræðum eftir því sem þörf er á.
8. gr.
Fjármál
Tekjur miðstöðvarinnar eru eftirfarandi:
a. framlag frá fyrirtækjum í stjórn miðstöðvarinnar,
b. framlag frá lagadeild Háskólans í Reykjavík,
b. almennir styrkir eða styrkir til einstakra verkefna,
c. greiðslur fyrir rannsóknir, námskeið eða þjónustustarfsemi,
d. tekjur af útgáfustarfsemi,
e. aðrar tekjur, t.d. gjafir.
Reikningshald miðstöðvarinnar skal vera hluti af reikningshaldi
lagadeildar Háskólans í Reykjavík. Fjárhagsáætlun hennar skal vera
hluti af fjárhagsáætlun lagadeildar, nema framkvæmdastjórn háskólans
ákveði annað.
9. gr.
Gildistaka
Reglur þessar öðlast þegar gildi.
Ákvæði til bráðabirgða.
Forseti lagadeildar Hásólans í Reykjavík skal skipa fyrstu stjórn miðstöðvarinnar.
Reykjavík, 9. maí 2008
Þórður S. Gunnarsson
forseti lagadeildar Háskólans í Reykjavík
