Markmið
Auka þekkingu á samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi og efla getu fyrirtækja til að sýna ábyrgð gagnvart samfélaginu, umhverfi sínu og mannréttindum í daglegum rekstri.
Starfsemin
Eþikos aflar og miðlar þekkingu á tengslum viðskipta og
samfélagsins og vinnur markvisst með fyrirtækjum, yfirvöldum og öðrum
aðilum í að efla samfélagsábyrgð fyrirtækja hér á landi.
Hlutverk - Miðstöðinni er ætlað að vera:
• Þekkingabrunnur:
o Afla sérþekkingar m.a. með sérþjálfuðum starfsmönnum og með því
að safna og halda til haga efni um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja.
o Hafa umsjón með rannsóknum sem tengjast samfélagsábyrgð fyrirtækja.
• Vettvangur umræðu og athafna:
o Leiða saman aðila úr viðskiptalífinu, og ýmsum samtökum.
o Koma á tengslum á milli íslenskra aðila og erlendra aðila sem hafa reynslu á sviði samfélagsábyrgðar fyrirtækja.
• Upplýsingaveita:
o Skipuleggja ráðstefnur.
o Skipuleggja námskeið og annars konar þjálfun.
o Sjá um þýðingu bóka, greina og annars efnis.
• Tengiliður við samtök og stofnanir erlendis um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja á Íslandi.
• Ráðgjafi fyrir einstaka aðila um málefni sem tengjast samfélagsábyrgð fyrirtækja.
