Innleiðing samfélagsábyrgðar
Þegar stjórnendur hefjast handa við að efla samfélagsábyrgð fyrirtækja sinna, stofnana sem þeir veita forystu eða samtaka, er mikilvægt að vanda til verka. Á síðustu árum hefur safnast upp mikil þekking á leiðum til þess að tryggja góðan árangur í þeim efnum. Hér að neðan má finna tengla á völdu efni sem sótt er til alþjóðlegra samtaka og stofnana sem búa yfir mikilli reynslu og sérhæfingu á því hvernig best sé að innleiða samfélagsábyrgð í daglegan rekstur.
Mannréttindamál
Í þeirri skýrslu sem hér er vísað til, gefst
stjórnendum fyrirtækja tækifæri til þess að dýpka skilning sinn á þeim
álitamálum sem tengjast viðskiptum og mannréttindum. Fjallað er um
helstu sáttmála sem alþjóðasamfélagið hefur gengist undir og lúta að
því að tryggja einstaklingum viðunandi réttindi þegar kemur að stöðu
þeirra á vinnumarkaði. Skýrslan var unnin í
samstarfi Castan-stofnunarinnar í Ástralíu sem sérhæfir sig í
rannsóknum á sviði mannréttindalögfræði, og Sameinuðu þjóðanna.
HUMAN RIGHTS TRANSLATED - A BUSINESS REFERENCE GUIDE
