Fréttir

19.11.2009 : Samfélagsábyrg nýsköpun - Alþjóðleg athafnavika

Á morgun föstudag stendur Eþikos fyrir hádegismálþingi um samfélagsábyrga nýsköpun. Er það gert í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku sem Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í. Á málþinginu verður fjallað um það hvernig nýsköpun á ýmsum sviðum getur stuðlað að bættu samfélagi og aukinni meðvitund um mikilvægi samfélagsábyrgðar í viðskiptum. Málþingið fer fram í stofu K5 í Kringlunni 1 og hefst kl. 12:00.

Lesa meira
 

11.11.2009 : Siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að siðareglum fyrir ráðherra ríkisstjórnar Íslands og starfsfólk stjórnarráðsins. Hafa drög að þeim verið birt á heimasíðu forsætisráðuneytisins og um nokkurt skeið hefur almenningi gefist kostur á að koma með efnislegar athugasemdir við reglurnar.

Lesa meira
 

Um Eþikos

Um Eþikos

Eþikos er leiðandi í að efla samfélagsábyrgð fyrirtækja á Íslandi. Markmið miðstöðvarinnar er að miðla þekkingu á þessum  málaflokki og aðstoða aðila sem vilja auka getu fyrirtækja í að axla ábyrgð gagnvart samfélaginu, umhverfi sínu og mannréttindum.

Lesa meira
 

Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica