Hvað er samfélagsábyrgð fyrirtækja?
Samfélagsábyrgð
fyrirtækja (SÁF) felur í sér viðleitni fyrirtækja til þess að axla
ábyrgð á framgangi góðs siðferðis í viðskiptum og efnahagslegri
framþróun. Það gera þau með því að taka þátt í uppbyggingu samfélagsins
og tryggja virðingu fyrir umhverfinu í gegnum sinn daglega rekstur.
Á síðustu árum hafa þúsundir fyrirtækja víða um heim tekið í síauknum
mæli tillit til SÁF í stefnumörkun sinni og skipulagi. Alþjóðastofnanir
á borð við Sameinuðu þjóðirnir og OECD, hafa með virkum hætti hvatt
fyrirtæki til þess og þá hafa stjórnvöld í mörgum löndum, jafnt í
Evrópu sem og annars staðar, stuðlað að því að fyrirtæki axli
samfélagsábyrgð sína.
SÁF skiptir máli gagnvart neytendum, fjárfestum og starfsfólki. Hér á
landi hafa fá fyrirtæki innleitt SÁF í rekstur sinn með skipulegum
hætti en nú þegar mikið uppbygginarstarf er framundan í íslensku
atvinnulífi er mikilvægt að eigendur og stjórnendur fyrirtækja leiti
allra leiða til þess að auka samkeppnishæfni og trúverðugleika
fyrirtækja sinna.
Óhætt er að fullyrða að SÁF muni skipta miklu máli í viðskiptaumhverfi
framtíðarinnar og verði einn þeirra lykilþátta sem litið verði til
þegar verðgildi og framtíðarhorfur fyrirtækja verða metnar.
