Fréttir

Samfélagsábyrg nýsköpun - Alþjóðleg athafnavika - 19.11.2009

Á morgun föstudag stendur Eþikos fyrir hádegismálþingi um samfélagsábyrga nýsköpun. Er það gert í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku sem Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í. Á málþinginu verður fjallað um það hvernig nýsköpun á ýmsum sviðum getur stuðlað að bættu samfélagi og aukinni meðvitund um mikilvægi samfélagsábyrgðar í viðskiptum. Málþingið fer fram í stofu K5 í Kringlunni 1 og hefst kl. 12:00.

Lesa meira
 

Siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins - 11.11.2009

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að siðareglum fyrir ráðherra ríkisstjórnar Íslands og starfsfólk stjórnarráðsins. Hafa drög að þeim verið birt á heimasíðu forsætisráðuneytisins og um nokkurt skeið hefur almenningi gefist kostur á að koma með efnislegar athugasemdir við reglurnar.

Lesa meira
 

Námskeið um sjálfbærni og samfélagsábyrgð í fjárfestingum og fjármálastjórnun - 19.10.2009

Föstudaginn 23. október verður haldið námskeið í Háskólanum í Reykjavík um sjálfbærni og samfélagsábyrgð í fjárfestingum og fjármálastjórnun. Jean-Dominique Rugiero, stjórnandi fyrirtækisins Daxam-Sustainability Services í Svíþjóð, er leiðbeinandi á námskeiðinu.

Lesa meira
 

Anna Björk Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður Eþikosar - 19.10.2009

Á stjórnarfundi Eþikosar sem haldinn var í höfuðstöðvum Össurar hf. hinn 7. september síðastliðinn, var Anna Björk Bjarnadóttir kjörin formaður stjórnar Eþikosar til eins árs. Hún tekur við af Ara Skúlasyni sem kjörinn var fyrsti stjórnarformaður stofnunarinnar á síðasta ári.

Lesa meira
 

Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica