Samfélagsábyrg nýsköpun - Alþjóðleg athafnavika
Á morgun föstudag stendur Eþikos fyrir hádegismálþingi um samfélagsábyrga nýsköpun. Er það gert í tilefni Alþjóðlegrar athafnaviku sem Háskólinn í Reykjavík er þátttakandi í. Á málþinginu verður fjallað um það hvernig nýsköpun á ýmsum sviðum getur stuðlað að bættu samfélagi og aukinni meðvitund um mikilvægi samfélagsábyrgðar í viðskiptum.
Á málþinginu mun Dóra Birna Sigurjónsdóttir m.a. flytja erindi um það hvernig stoðtækjafyrirtækið Össur hf. hafði með nýsköpun sinni áhrif á líf hennar. Hún starfar nú hjá fyrirtækinu. Páll Ásgeir Davíðsson, forstöðumaður Eþikosar, mun fjalla um rannsókn sem unnin var við Háskólann í Reykjavík um samfélagsábyrga nýsköpun. Þá mun Anna María Pétursdóttir, starfsmannastjóri Vífilfells, veita áheyrendum innsýn í hvernig hægt er að byggja nýsköpun á grundvelli samráðs og samstarfs við samfélag og hagsmunaaðila.
Dagskrá málþingsins
Páll Ásgeir Davíðsson
Hvað er samfélagsábyrg nýsköpun og hver er ávinningur fyrirtækja af henni?
Anna María Pétursdóttir
Nýsköpun á grundvelli samráðs og samstarfs við samfélagið og helstu hagsmunaaðila.
Dóra Birna Sigurjónsdóttir
Hvernig getur nýsköpun breytti lífi einstaklinga?
Málþingið fer fram í stofu K5 í Kringlunni 1 og hefst kl. 12:00.
