Fréttir

Siðareglur fyrir ráðherra og starfsfólk Stjórnarráðsins

11.11.2009

Um nokkurt skeið hefur verið unnið að siðareglum fyrir ráðherra ríkisstjórnar Íslands og starfsfólk stjórnarráðsins. Hafa drög að þeim verið birt á heimasíðu forsætisráðuneytsins og um nokkurt skeið hefur almenningi gefist kostur á að koma með efnislegar athugasemdir við reglurnar.

Þegar unnið hefur verið úr athugasemdunum og tillit tekið til þeirra mun Jóhanna Sigurðardóttir leggja fram frumvarp til samþykktar á Alþingi þar sem í lögum verði kveðið á um að forsætisráðherra samþykki siðareglur fyrir fyrrgreinda aðila og skipi siðanefnd. Með þessari nýju lagasetningu munu fylgja drögin að hinum nýju siðareglum og því munu þær verða teknar til efnislegrar umræðu á Alþingi.

Í tilkynningu um setningu siðareglnanna og tilgang þeirra segir m.a.:

„Í siðareglunum er sérstaklega reynt að móta reglur sem koma eiga í veg fyrir að hagsmunaárekstrar verði í störfum ráðherra, embættismanna og annars starfsfólks Stjórnarráðsins. Sett eru fram fjögur megingildi um störf í Stjórnarráði Íslands sem eigi að mótast af óhlutdrægni. ábyrgð, þjónustu og heilindum. Einnig eru mótaðar í texta 20 góðar siðvenjur sem starfsfólk stjórnarráðsins eiga að tileinka sér.“

Drögin má nálgast hér á pdf. formi.


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica