Námskeið um sjálfbærni og samfélagsábyrgð í fjárfestingum og fjármálastjórnun
Föstudaginn 23. október verður haldið námskeið í Háskólanum í Reykjavík. Að námskeiðinu standa Eþikos og Útflutningsráð í samstarfi við Fjárfestingastofu, Samtök fjármálafyrirtækja, Nýsköpunarsjóð og Samtök fjárfesta.
Markmið námskeiðsins er að kenna hvernig haga megi fjárfestingum og fjármálastjórnun undir formerkjum samfélagsábyrgðar og og gera þátttakendum kleift að sækjast eftir þeim fjárhagslega ávinningi og tækifærum sem í því felst.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Jean-Dominique Rugiero, stjórnandi fyrirtækisins Daxam-sustainability Services í Svíþjóð en hann hefur ráðlagt opinberum stofnunum, alþjóðlegum fyrirtækjum sem og litlum og meðalstórum fyrirtækjum í yfir 20 löndum um þessi mál.
Fyrir hverja er námskeiðið:
- Fyrirtæki og stofnanir sem vilja kynna sér fjármálastjórnun undir formerkjum samfélagsábyrgðar og sjálfbærni.
- Aðila sem vilja laða að samfélagsábyrgar fjárfestingar.
- Fjárfesta sem vilja kynna sér nýjustu þróun á þessu sviði eða slást í sívaxandi hóp samfélagsábyrgra fjárfesta.
Þátttökugjald er 39.900 kr. og innifalið í því eru námskeiðsgögn, hádegisverður og kaffi.
Skráning fer fram á netfanginu utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511-4000.
Nánari upplýsingar um námskeiðið veita Inga Hlín Pálsdóttir, inga@utflutningsrad.is eða Stefán Einar Stefánsson, stefaneinar@ru.is.
