Fréttir

Anna Björk Bjarnadóttir nýr stjórnarformaður Eþikosar

19.10.2009

Á stjórnarfundi Eþikosar sem haldinn var í höfuðstöðvum Össurar hf. hinn 7. september síðastliðinn, var Anna Björk Bjarnadóttir kjörin formaður stjórnar Eþikosar til eins árs. Hún tekur við af Ara Skúlasyni sem kjörinn var fyrsti stjórnarformaður stofnunarinnar á síðasta ári.

Anna Björk er framkvæmdastjóri einstaklingssviðs Símans. Hún hefur starfað í fjarskiptageiranum s.l. átta ár, með viðkomu í Capacent sem stjórnunarráðgjafi 2007 - 2008. Anna Björk var forstöðumaður á einstaklingssviði og áður markaðssviði hjá Símanum á árunum 2004-2007, og framkvæmdastjóri þjónustusviðs hjá TDC Noregi frá 2000 - 2004. Anna Björk nam íþróttafræði við Íþróttaháskóla Ungverjalands og Íþróttaháskólann í Osló og útskrifaðist sem slíkur árið 1994. Síðan hefur hún bætt við sig markaðsnámi og stjórnunarnámi og útskrifaðist úr meistaranámi í stjórnun á fjarskiptamarkaði árið 2004 frá Wharton/TDC.


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica