Siðareglur 365 miðla ehf.
Á síðustu árum hafa fyrirtæki í síauknum mæli sett starfsmönnum sínum siðareglur. Hefur þeim verið ætlað að auka meðvitund fólks um þá ábyrgð sem á því hvílir í störfum þess. Hafa fyrirtæki gert þetta að fyrirmynd margra fagstétta sem talið hafa nauðsynlegt að móta sameiginleg gildi og siðagrundvöll fyrir þann hóp sem tilheyrir viðkomandi stétt.
Hinn 4. júní síðastliðinn samþykkti stjórn 365 miðla ehf. að setja starfsfólki sínu siðareglur og er þeim sérstaklega beint að þeim sem starfa á vettvangi fréttaflutnings og upplýsingagjafar. Margt áhugavert er að finna í reglunum en þær eru byggðar á þeim fjórum grunngildum sem fyrirtækinu hafa verið sett og eru: sköpunargleði, heiðarleiki, trúverðugleiki og arðsemi.
Ekki er annað hægt að skilja en siðareglu þessar séu hugsaðar sem viðbót við þær siðareglur sem blaðamannastéttin á Íslandi hefur sett sér hér á landi. Þá er einnig fullvíst að margir þeir sem starfa við umsvifamikla fjölmiðla eins og 365, að margir þeirra eru ekki félagsmenn í Blaðamannfélagi Íslands og hafa ekki heyrt undir neinar ákveðnar siðareglur.
Hinar nýju siðareglur 365 miðla ehf. má nálgast í gegnum stærsta safn siðareglna á Íslandi hér á vefsíðu Eþikosar.
