Sameinaði lífeyrissjóðurinn setur sér siðareglur
Nú hefur stjórn Sameinaða lífeyrissjóðsins samþykkt samskipta- og siðareglur fyrir sig og starfsmenn sjóðsins. Sýnir þetta framtak sjóðsins að vitundarvakning er að verða meðal fyrirtækja og fjárfesta um mikilvægi siðareglna og þess að lifandi umræða eigi sér stað um siðferðileg álitamál sem ætíð geta komið upp í rekstri fyrirtækja.
Áður fyrr töldu fyrirtæki að með setningu siðareglna væru fyrirtæki með einhverjum hætti að viðurkenna að siðferðilega vafasamar ákvarðanir hefðu verið teknar á þeirra vettvangi en sem betur fer virðist sá tími hafa runnið sitt skeið á enda. Þau fyrirtæki sem setja sér siðareglur og halda þær í heiðri, m.a. með því að halda gangandi umræðu um þær, sýna ábyrga framgöngu í erfiðu umhverfi viðskiptaheimsins nú um stundir.
Samskipta- og siðareglur Sameinaða lífeyrissjóðsins er nú hægt að nálgast í gagnagrunni Eþikosar yfir þær siðareglur sem til eru á Íslandi.
