Fréttir

Ágreiningur um ISO 26000

25.5.2009

Alþjóða staðlasamtökin (International Organisation fro Standardisation) hafa frá árinu 2005 unnið að nýjum staðli fyrir samfélagsábyrgð og hefur hann hlotið heitið ISO 26000. Hinn 18. maí síðastliðinn hófst vikulangur fundur hóps sem vinnur að mótun staðalsins og fer hann fram í Quebec í Kanada. Á fundinum er ætlunin að ná niðurstöðu um nokkur mikilvæg atriði er varða innihald og endanlega gerð hans.

Eitt af því sem komið hefur í ljós að undanförnu er gagnrýni stjórnvalda í nokkrum ríkjum á staðalinn en þau telja að hann gangi of langt og geti gengið í berhögg við lög í viðkomandi löndum. Meðal þeirra ríkja sem gert hafa alvarlegar athugasemdir í þessa veru er Kína en stjórnvöld þar í landi hafa beitt utanríkisþjónustu sinni til þess að koma í veg fyrir að vinna staðalsins geti haldið áfram. Sú viðleitni hefur þó ekki borið árangur.

Áhugavert verður að fylgjast með áframhaldandi vinnu að staðlinum og hvort samstaða náist um endanlega útfærslu hans. (Sjá nánar á heimasíðu Ethical Corporation).


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica