Fréttir

Ársskýrsla Global Compact

13.5.2009

Nú hafa Sameinuðu þjóðirnar birt ársskýrslu Global Compact fyrir starfsárið 2008. Í skýrslunni kemur m.a. fram að þátttakendur í verkefninu eru orðni 6.500 talsins. Á starfsárinu undirgengust 1473 fyrirtæki sáttmálann en það er 30% aukning á nýskráningum milli ára. Ljóst er af þessum tölum að slagkraftur hópsins er að aukast og mun hann geta haft umtalsverð áhrif á framgang góðra viðskiptahátta í öllum álfum á næstu árum.

Í inngangi að ársskýrslunni fjallar Georg Kell, framkvæmdastjóri GC, um þann öldudal sem markaðir heimsins virðast sigla í gegnum þessi misserin. Fullyrðir hann að þau málefni sem GC hefur unnið að á síðustu árum hafi í ljósi hrunsins hlotið meiri athygli en ella hefði orðið, enda séu menn búnir að átta sig á því að endurreisnin verði að byggja á ábyrgum langtímasjónarmiðum í rekstri og breyttum viðhorfum til sjálfbærni. Í lok inngangs síns segir Kell m.a.: „vilji fyrirtækja til þess að endurheimta traust á mörkuðum og vinna gegn alheimsógnum mun aðeins raungerast með því að fjölga þeim fyrirtækjum sem taka með skipulegum hættum á viðfangsefnum tengdum umhverfi, samfélagi og stjórnarháttum (ESG issues).“

Hér má nálgast ársskýrsluna í heild.


Leita



Þetta vefsvæði byggir á Eplica