Fréttir
Safn íslenskra siðareglna
Eþikos hefur nú tekið saman þær siðareglur sem fag- og starfsstéttir, stofnanir, fyrirtæki og frjáls félagasamtök hafs sett sér hér á landi og aðgengilegar eru á netinu.
Meðal þess sem finna má í þessari samantekt eru reglur sem lengi hafa fylgt elstu fagstéttum landsins en aðrar eru nýjar af nálinni og settar hafa verið til þess að svara kalli tímans og aukinni þjónustu á ýmsum sviðum þjóðfélagsins.
Hafi einhver upplýsingar um siðareglur sem ekki eru taldar upp á lista Eþikosar er hægt að koma þeim á framfæri við Stefán Einar Stefánsson í gegnum netfangið stefaneinar@ru.is.
