Ráðstefna um ábyrga viðskiptahætti
11.-12. maí næstkomandi mun Ethical Corporation standa fyrir ráðstefnu í London sem taka mun á viðfangsefnum er lúta að ábyrgum viðskiptaháttum. Þar munu yfir 500 aðilar leiða saman hesta sína og efla þekkingu sína og skilning á mikilvægi sjálfbærni go samfélagsábyrgðar. Meðal helstu fyrirlesara á ráðstefnunni má nefna Anders Dahlvig, forstjóra og stjórnarformann IKEA og Jeff Swartz, forstjóra Timberland. Á ráðstefnunni eiga þátttakendur að geta:
· Mótað áætlun um ábyrgð fyrirtækis síns á þeim ótryggu tímum sem nú eru uppi.
· Eflt og innleitt siðfræði í rekstur fyrirtækis síns.
· Gengið fram með góðu fordæmi í baráttunni við loftslagsbreytingar í heiminum.
· Kynnst skilvirkum aðferðum við að tryggja að birgjar og aðrir samstarfsaðilar, gangi ekki í berhögg við þau gildi sem fyrirtækið vill standa fyrir.
Frekari upplýsingar um ráðstefnuna er hægt að nálgast hér
