Steven Rochlin á Íslandi
Fyrir nokkru stóð Eþikos fyrir komu Steven Rochlin til landsins en hann er einn helsti sérfræðingur heimsins í dag í samfélagsábyrgð fyrirtækja og sjálfbærni. Hann starfar á vegum Accountability stofnunarinnar sem hefur verið til ráðgjafar við mörg alþjóðleg fyrirtæki og ríkisstjórnir.
Steven átti fundi með fulltrúum stofnaðila Eþikosar og var þeim til ráðgjafar um þau verkefni sem þeir fást við um þessar mundir. Þá bauð forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, Steven til fundar á Bessastöðum en þann fund sátu einnig stjórn og starfsmenn Eþikosar.
Hápunkturinn á heimsókn Steven var námskeið sem Eþikos hélt í samráði við Útflutningsráð. Bar það yfirskriftina „Frá sýn til framkvæmdar.“ Þátttaka á námskeiðinu var góð og voru þátttakendur á einu málu um að þar hefði margt gagnlegt komið fram sem stoðað getur að virkari innleiðingu samfélagsábyrgðar í íslensku viðskiptalífi.
Á komandi misserum mun Steven Rochlin koma að ráðgjöf við Eþikos og íslenskt atvinnulíf.
