Samfélagsábyrgð: Frá sýn til framkvæmdar
Eþikos og Útflutningsráð bjóða upp á námskeið um innleiðingu samfélagsábyrgðar sem lið í því að byggja upp traust, orðstír og ábyrga samkeppnishæfni. Þessar áherslur hafa aldrei verið mikilvægari en nú. Námskeiðið verður haldið frá kl. 09.00-17.00 í Háskólanum í Reykjavík.
Leiðbeinandinn Steven A.
Rochlin er eftirsóttur fyrirlesari og einn af fremstu alþjóðlegu
sérfræðingum á sviði samfélagsábyrgðar. Hann hefur skrifað bækur um
efnið, ráðlagt ríkisstjórnum víða um heim og fjölda fyrirtækja þ.á.m.
BP, BT, Cemex, Chevron, JP Morgan Chase, Nestlé, Pfizer, SAP og
Timberland.
Að námskeiðinu loknu munu þátttakendur:
· Öðlast aukinn
skilning á inntaki og vægi samfélagsábyrgðar á mörkuðum og á tímum
fjárhagserfiðleika.
· Þekkja hagnýtar
leiðir til þess að byggja upp traust, orðstír og samkeppnishæfni á
grundvelli samfélagsábyrgðar.
· Geta með markvissum
hætti kynnt samfélagslegt hlutverk fyrirtækisins gagnvart
viðskiptavinum, hluthöfum og hagsmunaaðilum.
· Fá tækifæri til að
byggja upp tengslanet sem styður við eflingu samfélagsábyrgðar
hérlendis.
Námskeiðið er ætlað fulltrúum fyrirtækja, stofnana og félagasamtaka sem
vilja innleiða stjórnarhætti sem sýna ábyrgð gagnvart efnahag,
samfélagi og umhverfi.
Þátttökugjald er 26.500 kr.
Nánari upplýsingar veita Inga Hlín Pálsdóttir hjá Útflutningsráði, s. 511 4000, inga@utflutningsrad.is og Stefán E. Stefánsson hjá Eþikos, s. 599 6526, stefaneinar@ru.is.
