Tíu leiðtogar að mati Ethical Corporation
Í árslok 2008 útnefndi tímaritið Ethical Corporation, þá tíu einstaklinga sem mest áhrif hefðu haft í átt til bætts siðferðis í heiminum á nýliðnu ári. Í mati á því hvaða einstaklingar ættu heima á þessum lista leituðu ritstjórar tímaritsins, til hóps sérfræðinga sem allir hafa innsýn í heim viðskipta og viðfangsefni samfélagsábyrgðar fyrirtækja.
Efstur á lista var settur Barack Obama, nýr forseti Bandaríkjanna.
Ástæða þess að hann er á þessum lista er fyrst og fremst sú staðreynd
að með framboði hans og kosningabaráttu hefur hann hreyft við fólki og
vakið von um að hægt verði að koma breytingum til leiðar í
fjármálaheiminum. Á sama tíma er það tekið fram að á næstu misserum
muni koma í ljós hvort hinn nýkjörni forseti muni rísa undir þeim
væntingum sem menn bera í brjósti í tengslum við kjör hans. Obama hefur
m.a. sagst ætla að mæta loftslagsbreytingum og hruni fjármálamarkaða
með því að skapa þúsundir „grænna starfa“.
Nánar má lesa um leiðtogana 10 á heimasíðu Ethical Corporation.
